hæ hæ

vildi bara láta vita af því að ég er komin með síðu fyrir föndrið mitt endilega kikið á hana heidufondur.blog.is

stikklað á stóru

þar sem það er alltaf langt á milli þess sem ég skrifa að þá er ýmislegt búið að gerast síðan síðast sjáum nú til ég ætlaði að fara um daginn í gæsaveislu en missti því miður af því vegna þess að ég lagðist í rúmið fárveik var með 40stiga hita í tvö sólarhringa og skemtileg heit ég keypti tjaldvagn á 15000 þúsund hann er reyndar 25 ára en er heill og lítur ágætlega út við fórum í fjölskyldu útilegu með systrum mínum og mömmu vorum í bústaðnum hjá höllu reyndar við í tjaldvagninum og brynja í sínu tjaldi og var það bara mjög fínt að vera þar gaman að við náðum að hittast öll það skeður nú ekki oft það var farið að skoða gullfoss og geysi og var þaðbara mjög gaman, ég er að taka garðinn hjá mér í gegn sem sagt er verið að grafa hann allan í sundur og á svo að setja nýja mold og sá svo í hann aftur það verður að gera þetta þar sem hann er alveg að drepast garðurinn, ég keypti mér hjól í dag nú á að fara að leggja bílnum og hjóla bensínið er orðið svo dýrt að ekki er annað hægt þetta er bara svona venjulegt hjól það eru 3 gírar á því og fótbremsa en það er bara nokkuð gott ogég er ánægð, svo erum við að fara í brúðkaup á laugardaginn það verðurbara gaman og ég samgleðst brúðhjónunum innilega það var mikið að það kom að þessu jæja þá held égað þetta sé komið í bili bið að heilsa  

eitthvað

hvernig stendur á því að það má aldrey tala  um það sem er að maður á að vera tilbúinn að hlusta á vandamál annara og það sem er að hjá því en svo má maður ekki tala um það sem er að hjá manni sjálfum þá allt í einu er fólk upptekið eða þarf að gera einhvað annað en að tala við mann og jafnvel þegar maður þarf mest á stuðningi að halda fólk virðist standa í þeirri trú að það sé ekkert að hjá mér því virðist standa á sama þó maður gráti annan hver dag vegna þess að sonur manns er með þessa veiki og maður ræður ekkert við hann, hann sparkar í mann og lemur, rífur kjaft og hunsar mann, maður elskar þetta barn útaf lífinu en það er ekkert sem maður getur gert til að létta honum lífið en það er öllum sama það er allt í lagi í minni fjölskyldu drengurinn er ljúfur sem lamb er svo blíður og góður aldrey neitt vandamál með hann eða svo virðast allir hugsa og segja, kennari hans hefur samband annan hvern dag og segir hann gerði þetta talaðu við hann, hann sagði þetta talaðu við hann, hann vill ekki gera þetta talaðu við hann það kemur ekki við skulum reyna þetta og sjá hvernig það gengur eða veita honum auka aðstoð í skólanum nei ég á bara að tala við hann og þá eiga málinn að reddast en málið er að ég ræð ekkert betur við hann en kennarinn og alltaf heyrir maður frá öðrum hann er svo blíður og góður það hlýtur að vera auðvelt að eiga svona barn og eins og venjulega brosir maður bara og segir það er allt í lagi hjá okkur því það vill enginn hlusta á mín vandamál eða mína vanlíðan því það er allt svo gott hjá mér en er það satt?  

best að blogga

það er ýmislegt búið að ske síðan ég skrifaði síðast ég er kominn með nýjan hund sem heitir rökkva og er labrador/border colle blanda og er alveg yndislegur hundur í alla staði það er allavega hægt að kenna henni og hún vill læra ég tók eldhúsið mitt í gegn búinn að mála það allt og þá á ég við allt innréttinguna líka og þetta er bara æðislega flott þó ég segi sjálf frá vinkona mín kom í heimsókn frá noregi og var æðislegt að hitta hana aftur við óskum henni til hamingju með ömmu barnið hann óðinn minn átti afmæli um daginn og var haldið uppá það um helgina á föstudaginn komu strákarnir úr bekknum hans og var svaka stuð á þeim svo á laugardag komu fjölskyldan sem sagt nóg að gera þessa helgi hann óðinn brákaði á sér hendina um daginn hann er alltaf jafn óheppin greyið svo að hann er í gipsi núna hann ætlar að líkjast mömmu sinni með þessa óheppni sína annars er margt annað í gangi á þessum bæ en ég ætla ekki nánar út í þá sálma hér kannski seinna

en mér langar að benda fólki bara öllum sem lesa þetta að ef einhvað bjátar á hjá ykkur munið eftir ykkar nánustu talið við þá og leitið eftir þeirra stuðning það hjálpar alveg rosalega mikið það vill oft gleymast hve mikil hjálp er í að vita að maður hafi fólkið sitt á bak við sig þegar það eru erfiðleikar hjá manni eða vandamál

lifið heil og njótið lífsins  verið blessuð

þetta helst

það er margt að ske hjá okkur þessa dagana, það er verið að taka rafmagnið hjá okkur í gegn það er verið að skipta um rafmagnstöflu og verið að skipta út öllum vírum þetta er ekkert smá fyrirtæki að standa í þessu þetta er búið að taka tvær helgar að draga í nýju vírana og ekki búið en það á eftir að draga í eldavélina og þvottahúsið og svo nátturulega að tengja töfluna rafvirkinn er að gera þetta fyrir okkur í sínum frí tíma svona vinagreiði eins og það er kallað við urðum að skrópa á þorrablótið í sveitinni vegna þessara framkvæmda en eins og rafvirkinn sagði við okkur þið eruð heppin að vera í steinhúsi vegna ástandsins sem var á gömlu vírunum á einum stað voru þeir brunnir saman og fastir inní rörinu þannig að á þeim stað er udaná liggjandi kapall en ég segi bara ég verð fegin þegar þetta verður búið og ég þarf ekki að standa í þessu aftur á næstunni. á laugardaginn var fórum við í 50 ára afmæli hjá rafvirkjanum okkur vinkona mín sem er konan hans áhvað að halda honum óvænta veislu sem heppnaðist ótrúlega vel og við skemmtum okkur frábærlega og þökkum við fyrir okkur það var æðislegt að fá að vera með í þessu og sjá hvað hann varð snortinn á að sjá vini og ættingja saman komna til að fagna með honum þetta var bara virkilega góð upplifun. honum óðni hefur gengið mun betur í skólanum eftir að hann byrjaði á lyfjunum og er bara rosa breyting á honum sem er bara æðislegt kennari hans á bara ekki til orð yfir því hversu mikil breyting hefur átt sér stað og er bara æðislegt að fá loksins að heyra einhvað gott úr skólanum þetta hefur verið svo mikið vesinn frá því hann byrjaði og nú loksins virðist ætla að ganga vel og vona ég bara að það muni halda áfram. það var einhvað meira sem ég ætlaði að skrifa um en ég bara man það ekki alveg jú hún mamma átti afmæli í dag og óskum við henni innilega til hamingju með daginn sem sagt 27 feb og ég held að þetta sé nóg í bili bæbæ

nýtt ár

það má segja að nýja árið hefur byrjað frekar illa að mínu mati það er verið að greina hann óðinn með adhd sem er athyglisbrestur með ofvirkni og einnig einhverja einhverfu það eru ekki allar niðurstoður komnar úr þeim prófum, réttara sagt er þetta forgeining því að hann á eftir að fara í greiningarstöðinna í greiningu þar en það getur teki allt að 2 ár að komast þar að sem er alveg út í hött að það þurfi að bíða svo lengi. annars veit ég ekki hvernig ég á að vera yfir þessum fréttum éger búinn að vera mjög dofin og niðurdreiginn að það jaðar við þunglyndi það er frekar erfitt að átta sig á öllum þessum upplýsingum sem maður er að fá og reyna að vinna úr þeim en maður veit þó hvað er að barninu hann er ekki bara að vera óþekkur heldur ræður hann ekki við sig, maður þarf nú heldur betur að vinnaí hans málum núna setja nýjar reglur á heimilið og þar fram eftir gotunum hann þarf alveg rosalega reglu og strangt aðhald. það á að setja hann á lyf og prófa hvernig hann verður af þeim hvortþað hjálpi honum einhvað og eru svona blendnar tilfinningar hjá okkur hónunum með það en við erum til í að prófa allt sem gæti hjálpað honum að líða betur. við erum búinn að gefa hana skoppu okkar frá okkur og er hennar sárt saknað en hún kost í sveit rétt fyrir utan akureyri og þar fær hún að vera frjáls og líður þarmeð mikið betur. jæja það var ekki meira að sinni enda veit ég varla hvað ég er búinn að skrifa hér svo að ég segi bara bless bless

jól jól jól jól

ég vildi bara óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári þakka liðið

jólakveðjur Ragnheiður

er ekki kominn tími á nýtt blogg

það er orðið langt síðan síðast það er búið að vera mikið að gera og margt að ske núna er ég að undir búa afmælispartýið mitt og reyna að tjasla því saman það verður haldið uppá það eftir viku og núna er ég í vandræðum með að finna einhverja partyleiki svo ef þið hafið einhverjar uppá stungur um leiki endilega látið mig vita. ég er farinn að skreyta fyrir jólinn svona að reyna að lífga aðeins uppá tilverunna það er allt svo dimmt og vonlaust að ég varð bara að byrja á þessu enda er allt orðið mikið bjartara  en það var. ég er að reyna að lífga uppá eldhúsið hjá mér ætla að reyna að mála það og gera fínt fyrir jól er að safna að mér flísaafgöngum frá hinum og þessum því peningarnir eru ekki miklir og því verður að gera það sem hægt með því sem ég hef í höndunum svo að ef einhver á flísar og vill láta mig fá þá látið mig vita ég tek við öllu. mamma ætlar að láta mig fá flísar sem hún er með og ætla ég að setja þær á borðplötuna á innréttinguni svona vera aðeins oðruvísi það er allt betra en það sem er í dag ég þoli ekki eldhúsið eins og það er í dag það er bara ljótt. ég er búinn að kaupa allar jólagjafirnar nema fyrir strákana og mig og jóa en allt hitt er búið. við systurnar og mamma ættlum að hittast í næstu viku og baka saman og ég held að það verði bara gaman þetta erí fyrsta skipti sem við gerum það svona eftir að við systurnar stofnuðum okkar eiginn heimili og ég vona að þetta verði bara að árlegum viðburði hjá okkur. jæja ég held að þetta sé orðið gott ég veð úr einu í annað svo að égkveð núna og læt ykkur um að lesa úr þessari vitleysu bæbæ      

það er dimmt yfir

og þá er ég ekki að tala um veðrið. eins og einhverjirvita þá lenti ég í einelti í skóla og það ekkert litlu en það sem mig óraði ekki fyrir var hversu djúpt þetta sítur í mér eftir öll þessi ár þannig er mál með vexti að ég fór á fund með kennaranum hans óðins í vikunni til að ræða þetta sem er að gerast hjá honum í skólanum og hún vísar okkur inn í skólastofa og við setjumst niður hún við kennaraborðið og ég fyrir framan hana við nemendaborð ok svo förum við að tala um óðinn en ég finn fyrir þessari sí vaxandi vanlíðunnarkennd og eftir smá stund er ég farinn að upplifa gamlar kendir sem ég hef ekki fundið fyrir í mörg ár ég hélt ég væri laus við þetta og þetta var ekki kennaranum hans óðinns að kenna því hún var mjög allmennileg það var bara það ég sat inni skólstofu við kennaraborðið og gamlar martraðir vöknuðu ég helt að ég væri búinn að vinna úr öllum þessum málun en svo er ekki þær liggja þarna undir niðri og komasvo upp þegar maður lendir í svipuðum aðstæðum ég er ekki en búinn að jafna mig alveg eftir að hafa talað við kennaran hans óðins er búinn að vera grátgjörn þessa daga semsagt mjög brotthætt enn þetta er að ganga yfir sem betur fer en pælið í því hvað einelti eyðirleggur við erum að tala um að þetta skeði fyrir 18 árum síðan eða þar að segja síðasta skiptið sem þetta skeði og ég er enn að berjast við þetta. þetta er viðbjóður hvað ætli séu margir að berjast við þetta sama því að þetta hefur fengið að líðast í svo mörgár í skólum landsins er ekki komið nóg ég held það áður enn fleyrri líf verða eyðilögð 

   

sonurinn

hann óðinn minn á í einhverjum vandræðum í skólanum við fengum bréf frá kennaranum hans um að óðinn sé að lemja og klóra aðra krakka að ástæðulausu í skólanum og hún bað okkur um að ræða við hann sem við gerðum og það kom bara annað í ljós það lítur út fyrir að barnið mitt verði fyrir einhverju einelti sem er mjög slæmt mál við ætlum að biðja um fund og að þetta sé skoðað betur því að samkvæmt bréfinu frá kennaranum er þetta bara honum að kenna og lítur útfyrir að þau eða hún hafi ekki skoðað málið og ath hvort annað lægi að baki þessu ofbeldi hjá honum hann hefur ekki verið laus höndin í gegnum tíðina og það er farið að bera á því að hann sé að einangrast og hverfa inn í skel. ef það er satt að óðinn sé að ráðast á  aðra krakka þá verðu nátturulega að taka á því og stoppa það en það verður líka að stoppa það ef það er verið að hrekkja hann ég er svo fúl yfir að það sé komið með þessa ásökun á drenginn án þess að það sé skoðað og ath hvort það sé ekki meir en ég mun berjast fyrir mínu barni og komast til botns í þessu og það er sama hver niðurstaðan verður það verður að laga þetta mál

ég veit hvað það er að lenda í einelti og það alvarlegu og ég mun ekki líða það hvort sem það eru þolendur eða gerendur þá mun það ekki líðast hér þetta skemmir mann svo og getur eyðilagt svo margt fyrir manni í framtíðinni og það tekur langan tíma að vinna sig útúr því ef það tekst einhvern tíman. ég veit að eins og með mig þá gegn ég í gegnum þetta í  6 ár og við erum að tala um skólasystkyni, kennara og skólastjóra sem stóðu öll saman í þessu og þetta var helvíti á jörðu að þurfa að mæta í skólan og ég mun aldrey ná að fyrir gefa þessu fólki fyrir hvað það gerði mér og það sem mér finnst verst af öllu er að þessi skólastjóri fær en að vera skólastjóri og kenna börnum eftir að hvað hann gerði mér og ég veit hann hefur verið rekinn úr öðrum skólum samt er hann ráðinn aftur og aftur hvað er að þessu fólki sem stjórnar því hverjir stjórna og kenna börnum í skólum landsins ég myndi segja að þetta fólk sé blind og heimskt ekki það að ég viti hvaða fólk þetta sé en hvað um það   

Hitt og þetta og þetta og hitt

jæja það er langt síðan síðast. og það er margt í gangi núna er búinn að vera breyta heimilinu hjá mér skipta um herbergi og svoleiðis. honum óðinn gengur bara vel í skólanum og er mjög ánægður það er enginn smá breyting á barninu eftir að hann byrjaði í skólanum hann er mikið ánægðari barnið sem var vandamál með að koma í bólið á kvöldinn er allt í einu mjög auðvelt að senda upp í rúm og bara allt frábært með hann. Ég er að undirbúa afmælið mitt spá og speklura með hvernig ég á að hafa það veit það bara að það verður gaman það er eina niður staðan sem er kominn með það svo er ég byrjuð að selja LRheilsu og snyrtivörur nýbyrjuð á því hef reyndar ekkert verið að halda kynningar ennþá er svona að kynnast vörunum almennilega og er mjög sátt við það sem ég hef prófað (alovera er bara það besta):) en ef einhver hefur áhuga þá er bara að hafa samband og við skoðun málið  ég skrifa aftur fljótlega bæbæ

hæ hæ ég er kominn aftur

jæja þá er maður hættur öllu flakki maður er varla búinn að vera heima hjá sér undanfarið vorum að koma af ættarmóti hjá hjá það var bara mjög fínt mótið var haldið í húnaveri enda eru þau ættuð þaðan úr nágrenninu svo var blönduvirkjun skoðuð og margt fleira áður en við vórum á ættarmótið vorum við á blöndósi í nökkra daga hjá ömmu og afa hans jóa það er alltaf jafn æðislegt að koma þangað. annars er ég að plata með það að maður sé hættur öllu flakki í bili við erum að fara í sumarbústað á mánudaginn það er svo gott að geta haft aðgang að einum bróðir hennar teingdó á einn og við getum fengið hann lánaðan ef einginn er að nota hann sem er mjög oft. og vitiði hvað óðinn er að byrja í skólanum í næstu viku litla barnið mitt orðið svo stór það er búið að kaupa skólatösku fyrir hann og þá er bara eftir það sem hann þarf að hafa með ég er varla að trúa þessu en tíminn líður og allir eldast.  nú er farið að stittast í að teingdó flytji  þau eru búinn að selja og ættla að afhenda um mánaðarmótinn húsið þeirra er ekki tilbúið en þau eru búinn að redda þessu öllu við verum í því að hjálpa þeim eins og hægt er og það er nú ekki nema sjálfsagt enda þau búinn að hjálpa okkur svo mikið í gegnum tíðina að þetta er það minsta sem maður getur gert en ég veð úr einu yfir í annað svo að ég er hætt í bili bæbæbæbæbæbæbæ 

Sorgar dagur

þetta kvöld er búið að vera mjög erfitt og sorg og söknuður hjá okkur hjónunum núna í kvöld fórst góður vinur okkar í vélhjóla slysi. og viljum við votta konu hans, börnum og öllum öðrum ættingjum og vinum samúð okkar og meigi guð vernda þau. hann var góður vinur og vildi allt gera fyrir vini sína og ættingja og verður hans sárt sagnað meigi guð verda þig og geyma minningu um þig í hjarta okkar guð gefi þér frið kæri vinur.   

ein vika eftir

jæja þá er bara ein vika eftir í að ég hætti að reykja og þetta legst bara vel í mig ég held ég sé bara tilbúinn núna til að hætta og mig langar líka til þess bara að vona að viljastyrkurinn sé nógu sterkur til að takast á við þetta. ég heyrði í bróður mínum í gær það var virkilega gaman langt síðan maður heyrði í honum enda er dýrt að hringja á milli landa en við erum að reyna að halda einhverju sambandi það getur stundum verið dálítið erfitt að skilja hann enda er hann búinn að búa úti í fjölda ára þannig að það er mikill hreimur hjá honum en það er sama allt kemst til skila. við ætlum að reyna að hittast þegar ég fer út í nóvember og yrði það æðislegt ef við gætum það mig langar svo að hitta hann ég hef ekki séð hann í fimmtán ár að ég held (1-3ár til eða frá)  annars er lítið annað að frétta nema að MUNIÐ ÍRSKA DAGA Á AKRANESI UM HELGINA ALLIR AÐ MÆTA BÆbæ

tvær vikur eftir

nú er ég að hætta að reykja (það er alveg satt) er að nota dropa sem heita nicobloc þetta er þriggja vikna ferli og er ég að klára 1 vikuna núna og gengur rosalega vel vildi að karlinn myndi gera þetta líka en það kemur að því. það gengur bara vel með hana skoppu og er hún mjög dugleg að læra. annars er ekkert meira að frétta, annars kom vinkona mín í heimsókn frá noregi og var æðislegt að hitta hana ein sú yndislegasta manneskja sem ég þekki ein af fáum sem skilur mig vildi að það væru fleiri eins og hún vildi að hún myndi stoppa lengur hér á landi. við erum að spá í að fara til hennar næsta sumar og ég vona að það gangi eftir annars var það ekki meira í bili bæbæ